ragga tagga

Tuesday, September 19, 2006

Aldurinn færist yfir..

...já og maður er bara orðin 22 ára....þetta er ekki lengi að líða. Komin 2 ára síðan ég var úti í CR, verð að fara að drífa mig út aftur!
En það var yndislegt að fara heim í réttirnar (þó að það væri nú ekki mikið gagn í mér í þetta skiptið) skondið að vera svo lengi að labba að litli bróðir manns gefst upp og vil frekar halda á manni....svo var auðvitað skellt sér í slaksmálasundið árlega og það hallaði verulega á okkar hlið í þetta skiptið og endaði með því að við urðum að fá liðsauka. Svo var að sjálfsögðu viskíkaka árlega bökuð.
En við Sunna systir komumst að því um daginn að við höfum fengið nokkra mis góða kosti í arf fá móður okkar...við vorum að labba út úr Glerártorgi og sáum þá að maður í bíl einum horfði mikið á okkur og var svona hálf að veifa okkur en hvorki Sunna né ég könnuðumst nokkuð við hann svo við svona hálf veifuðum og reyndið bara að koma okkur í burtu....þá kom í ljós að maðurinn var bara að reyna að fá að leggja í fatlaðastæðið sem við stóðum í!!!!
Annars er bara allt í þessu fína að frétta...
hafiði það bara gott
KV Raggan

Friday, September 08, 2006

Sama gamla rútínan ..

fer að komast á núna, byrjuð í skólanum og strax búin að fá fullt af verkefnum....
En það var alveg geggjað út á Spáni með kellingunum mínum og vil ég þakka þeim kærlega fyrir. Gaman að kíkja aftur til Barcelona, alltaf gott að vera í sól..og fá sér kokteil í morgunmat....
En það sem stendur einna mest upp úr hjá mér er þegar við fórum í vatnagarðinn og funndum eina braut sem við máttum fara allar sama í í einu, sitjandi í svona uppblásnum hring...og þar sem við erum enginn kríli þá náðum við engri smá ferð!!! var alveg viss um að við myndum velta í einni beygjunni!!!!
En svo fundum við líka RISA-kokteila bar..við erum að tala um ca 1,5 til 2 l kokteila!!!
Og svo var djammið okkar sunnu líka snilld, partý í risavillu og rokdiskó....
En ég held að við ættum bara að koma þessu af stað sem hefð ;)

Annars er bara allt gott að frétta, skóli, enginn vinna núna þar sem ég er enn hálf fötluð..
og svo eru það auðvitað réttirnar!!! sem ég get ekki beðið eftir
og síðast en ekki síðst.....AFMÆLIÐ MITT..........allir að muna eftir því
byð að heilsa ykkur hnoðlingar
KV Raggan