ragga tagga

Tuesday, July 27, 2004

Hættulegt Ísland?

Jæja þá er maður komin aftur frá eyrinni.  Gerði svo sem ekki mikið þar, verslaði pínu, fór í bío, gerði grín af Arnóri þar sem hann er núna kominn í hóp fatlaðra og fleira skemmtilegt.  Hitti líka Gunnhildi og vá hvað ein manneskja getur verið brún!!! Ég er eiginlega alveg viss um að þetta er ekki eðlilegt.  Ég og Atli fór svo í golf á mánudagakvöldinu og ég koms að því að ég er mjög léleg í golfi en næ að bæta það upp með öflugu svindli.  Atla tóks næstum því að hitta í einn mann sem var á brautinni við hliðina á okkur en það slapp til.  Svo ætlaði ég bara að húkka mér far heim á mánudagsmorgun þar sem ég þurfti ekki að byrja að vinna fyrr en kl 15 þökk sé Doddu.  En nei, það kom bara eiginlega ekki til greina að Atli og mamma hans myndu leyfa mér að fara á puttanum, það væri svo hættuleg! Ég held að sumir séu búnir að horfa á aðeins of margar bíómyndir.  Það verst sem ég held að gerist er að enginn vilji taka mig uppí og ég verð að labba alla leiðina eða þá að manneskjan sem tekur mig uppí er svo leiðinleg að ég lifi það ekki af.  En allaveg þau unnu og ég fór með rútunni, sem var ekki gaman en þar sem ég var með 2 stk karlmenn í fanginu þá tórði ég. Ætli ég verið ekki að fara að vinna
ta ta






Friday, July 23, 2004

Ég er ekki jafn heimsk og þig haldið!

Þetta gat ég.  Gleðin varið að vísu ekki mjög lengi þar sem ég sagði Kötu frá þessu og hún sá og benti mér strax á hvað þetta var glatað hjá mér.  Þess vega hefur hún verið ráðin sem sérlegur ráðgjafi og hjálparsveinn við þessa síðu.  Talaði við mömmu áðan og ég var að fá pakka frá skólanum mínum, jey! Þetta er bara allt saman að smella hjá okkur.  En fyrir þá sem vita ekki þá er ég að fara til Costa Rica í haust með tveimur bekkjarsystrum mínum og þetta á eftir að vera svo gaman.  Ef ykkur langar að skoða þá er þetta slóðin hjá skólanum sem við verðum í : http://www.spanishstudyholidays.com/Flamingo_Beach.html .  Eins og þið sjáið þá er þetta algjört æði.  Ég er svo bara að fara til Akureyra á eftir, verð að muna að taka með snilldar bækurnar sem Kata og Gummi gáfu mér í útskriftargjöf til að sýna stelpunum.





Wednesday, July 21, 2004

jæja ætli að þetta gangi??

Það er alltaf verið að skipa mér að gera blogg síðu áður en ég fer út.  Þannig að ég ákvað að reyna þetta, nú kemur bara í ljós hvort að þetta er að virka hjá mér