ragga tagga

Wednesday, February 08, 2006

Birrrr vá hvað það er kalt úti!! Við erum að tala um -11!! Ég er ekki viss um að þetta megi. En allavega þá fór ég heim í sveitina á Þorrablót um daginn og það var svo gaman. Dóri dór og Arnar skólastjóri slógu í gegn og ég komst að því að það er ekki svo góð hugmynd að dansa of hratt í hringi í gullkjólnum, pilsið er of vítt....Já og áfengismælar virka greinilega ekki á mömmu!!!
Síðustu helgi var vín-synda-ferð hjá skólanum. Við stöllurnar skelltum okkur og sjáum sko ekki eftir því. Gaman að minnast á það að ég skrapp á klósettið og þegar ég kom til baka þá var Eyja búin að setja rúmin saman... En það var mikið djamm og vil ég þakka Stefáni vini Eyju fyrir ógleymanlega gönguferð niður í bæ, heppin að lifa þá ferð af en vil líka skila kveðju til Brúnhildar!!
En táslurnar eru að jafna sig núna og maður er að reyna að drattast til að læra.
Byð að heilsa í bili
Raggan